
Ath. Sumarferðin er að verða fullbókuð. Ef hún selst upp er skráð á biðlista ef svo vildi til að einhverjir þyrftu að hætta við (sem gerist stundum). Fólk skráir sig á biðlista með tölvupósti til félagsins: gardurinn@gardurinn.is og taka þarf fram hve mörgum sætum óskað er eftir, en þar að auki þarf símanúmer að koma fram í tölvupóstinum.
Sumarferð Garðyrkjufélags Íslands, ferðin sem allir hafa beðið eftir, verður farin á Akranes (lengri leiðina) mánudaginn 14. júlí næstkomandi.
Lagt verður af stað kl. 9 frá bílastæðinu við Árbæjarsafn og áætluð heimkoma um kl. 17. Fararstjóri verður Guðríður Helgadóttir, formaður GÍ.
Dagskráin er í grófum dráttum þannig:
9:00 – Brottför frá Reykjavík
10:00 – Heimsókn í ræktun Sólveigar Jónsdóttur og Ólafs Jónssonar í Hvalfjarðarsveit
12:30 – Hádegisverður í Golfskálanum á Akranesi – ljúffeng og matarmikil kjúklingasúpa með tilbehör
13:30 – Garðaskoðun á Akranesi (Brekkubraut, Esjubraut og Melteigur)
15:30 – Heimsókn í Ræktunarstöðina Miðvogi
Ferðin kostar kl. 9.000 á manninn og er hádegisverður innifalinn.
Ferðin er komin í sölu í vefverslun félagsins á heimasíðu okkar, sjá
hlekk hér. [Sumarferð]