Aquilegia vulgaris ‘William Guiness’/’Magpie’ – Skógarvatnsberi ‘William Guiness’/´Magpie’

250kr.

Fjölær. Hæð 60-90 cm. Blómgun júní-júlí. Blóm tvílit dökk fjólublár/purpura og hvít. Þrífst best í léttri rakaheldinni garðamold vel framræstri í sól eða hálfskugga. Fræi sáð við 20° C. Fræ spírar yfirleitt nokkuð fljótt en getur tekið nokkra mánuði. Samheiti Aquilegia vulgaris ´Magpie’. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Vatnsberar geta sáð sér talsvert og sé þess ekki óskað er ráðlegt að klippa blómstöngla af að blómgun lokinni. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir.

Á lager

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

Vörunúmer (SKU): FRÆ 0439 Flokkar: , , Tags: ,