Aquilegia pink – Vatnsberi bleikur
250kr.
Fjölær. Blómin fremur ljósbleik, aðeins breytileg, niðurhangandi og að forminu til mjög svipuð algengu bláu vatnsberunum. Svipar mjög til skógarvatnsberans “Pink Flamingo”. Vatnsberar eru almennt harðgerðir og blómviljugir en blómstra ekki á fyrsta ári. Vatnsberar geta sáð sér talsvert og sé þess ekki óskað er ráðlegt að klippa blómstöngla af að blómgun lokinni. Vatnsberi/Sporasóley frjóvgast með opinni frjóvgun og getur því víxlfrjóvgast við aðrar vatnsberategundir.
Out of stock