Saxifraga X arendsii – Roðasteinbrjótur

250kr.

Harðgerður og frekar lágvaxinn steinbrjótur sem líður best í sól, eða þá hálfskugga og í þurrum, rýrum jarðvegi. Mikið notaður til að mynda breiður í steinhæðum. Ýmis yrki til og blómlitur ýmist rauður, hvítur eða í bleikum tónum þar á milli. Hæð blómstöngla sjaldan yfir 15-20cm.

Fræ af yrkjum er yfirleitt ekki einsleitt. Það getur blandast milli yrkja og jafnvel milli tegunda sömu ættkvíslar. Þetta á t.d. við um vatnsbera, blágresi, ávaxtayrki, yrki af japanshlyn, rósir og aðrar mikið kynbættar plöntur."

Vinsamlegast athugið að 700 kr. umsýslugjald leggst á hverja fræpöntun.

SKU: FRÆ 0546 Categories: , Tag: